FLETTIMYNDIR - Vallanes

bread.jpg

Uppskera

kaal.jpg

Starfsemin

dukur.jpg

Bóndinn

eymi.jpg

Byggið

buff.jpg
Bankabygg í gjafaumbúðum
Hjá Móður Jörð hefur Bankabyggi verið pakkað í sparifötin. Á pokanum eru uppskriftir af forrétt, aðalrétt og eftirrétt.
Gjafapakkningin fæst á eftirtöldum stöðum:
Heilsuhúsinu
Yggdrasil
Fjarðarkaupum
Góðri heilsu,
Melabúðinni og
Blómavali.

Holl og falleg tækifærisgjöf.
 
Uppskriftir í anda jólanna

Hér á vefnum er safn uppskrifta þar sem meginuppistaðan er bygg og grænmeti. Skoðið nýjar bygguppskriftir  í anda jólanna m.a. byggsteik, laufabrauð, jólagraut Gabríels og byggforrétt.

 
Jólatré frá Vallanesi
Sunnudagur, 30 Nóvember 2008 11:45

Móðir jörð verður með sölu á lífrænt ræktuðum jólatrjám á horninu við Yggdrasil á Skólavörðustíg dagana 19. til 23. desember. Um er að ræða jólatré af tegundinni furu.


Veljum íslenskt!
Veljum íslensk jólatré í ár!

 

 
Uppskeru lokið
Sunnudagur, 30 Nóvember 2008 11:35

Uppskeru er lokið og öruggt að allir sem vilja fá jólakartöflurnar, en á síðasta ári kláruðust þær um hátíðarnar og fengu ekki allir sem vildu. Nóg verður til af kartöflum fram eftir vetri og einnig nokkuð af rófum. Rauðrófur, gænkál og hvítkál fara langt með að duga út þetta ár.


Neysla á Bankabyggi hefur stór aukist núna á síðustu vikum og greinilegt að landinn velur íslenskt í kreppunni. Nóg er til af korni til að anna aukinni eftirspurn. Gaman er að geta þess að veitingastaðir Nings hafa nýlega hafið sölu á kjúklinga- og grænmetisréttum með Bankabyggi og eru þeir strax orðnir mjög vinsælir. Reynir bakari og og Brauðhúsið hafa einnig stór aukið notkun á Bankabyggi og byggmjöli frá Móður jörð.

Lesa meira...
 
Kartöfluuppskera í fullum gangi
Fimmtudagur, 18 September 2008 10:50


Í Vallanesi er upptaka á kartöflum hafin að fullum krafti. Teknar eru upp bæði rauðar íslenskar og gullauga. Hægt er að leggja inn pöntun með því að fara inn í linkinn Hafa samband. Allar pantanir verða afgreiddar eins fljótt og unnt er. .

 

 
Góð spretta
Fimmtudagur, 12 Október 2006 10:00
Það sprettur vel enda veðurblíða hin mesta síðustu dagana á Héraði. Grænmeti frá Vallanesi er þegar farið að sjást í verslunum alls staðar á landinu.
 
Fleiri greinar...
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 4
Móðir jörð - Vallanesi - 701 Egilsstöðum
sími:471-1747 - gsm:899-5569