FLETTIMYNDIR - Vallanes

graenmeti.jpg

Uppskera

himinn.jpg

Starfsemin

dukur1.jpg

Bóndinn

eymi2.jpg

Byggið

buff1.jpg
Kryddsultur / Chutney


Rauðrófugló
er bragðmikil grænmetisblanda sem bragðast vel með villibráð, lambasteikum, svínakjöti og flestum grænmetisréttum. Einnig með ýmsum ostum, t.d. gráðaostum. Rauðrófur eru þekktar fyrir hollustu og við mælum einfaldlega með þeim sem hollri viðbót með öllum mat.   Innihald: Rauðrófur, laukur, epli, hrásykur, eplaedik, vatn, engifer, hvítlaukur, kóríander, sjávarsalt, eldpipar.











Gulrófugló
er kraftmikil sulta með gulrófum eins og nafnið bendir til, einnig þurrkuðum ávöxtum og austurlenskum kryddum.  Gulrófur eru ríkar af C- vítamínum og við bætum þurrkuðum hvannarfræjum saman við, hollustunnar vegna.  Gulrófugló er góður bragðauki með ostum, ofan á kexið eða brauðið á morgnana. Auk þess er hún kærkomin viðbót við grillsteikina og aðra kjöt og grænmetisrétti.  Innihald: Gulrófur,  döðlur, apríkósur, hrásykur, eplaedik, engifer, hvannarfræ, ferskur eldpipar, krydd, salt.

 

 

 







Fennelgló
: Þessi nýstárlega blanda af fennel, hnúðkáli og rauðrófum ber með sér frískandi keim af lakkrís. Fennelgló er sérlega gott meðlæti með villibráð og öðrum kjötréttum. Einnig er tilvalið að nota hana sem bragðauka í salöt eða með grænmeti s.s. gulrótum. Innihald: Rauðrófur, hnúðkál, fennel 12%, eplasafi, hrásykur, eplaedik, engifer, stjörnuanís, sjávarsalt, svartur pipar.                 

40-060 Rauðrófugló 240g      
40-061 Gulrófugló 260g      
40-062 Fennelgló 240g      
40-066 Rauðrófugló 650g      
40-067 Gulrófugló 700g      
40-068 Fennelgló 650g      
 

Translator

Móðir jörð - Vallanesi - 701 Egilsstöðum
sími:471-1747 - gsm:899-5569