Hvað er lífræn ræktun? - Lífrænar afurðir eru framleiddar í sátt við umhverfið.
- Í lífrænum vörum fara saman öryggi, hreinleiki, mikil bragðgæði og fjölþætt næringarsamsetning.
- Lífrænar matjurtir eru framleiddar án eiturefna og tilbúins áburðar.
- Með því að kaupa lífrænar vörur hvetur þú til skynsamlegrar landnýtingar og gróðurverndar.
- Lífrænar aðferðir draga úr hættu á ýmiss konar mengun í matvælum.
- Í lífrænni ræktun eru ekki notaðar aðferðir og efni sem eru náttúrunni framandi.
- Lífrænar búfjárafurðir eru framleiddar með góðri meðferð dýra og náttúrulegum fóðurefnum og án hormóna.
- Erfðabreytt efni eru bönnuð í lífrænni framleiðslu.
- Við vinnslu og meðferð er lífrænum vörum haldið aðgreindum frá öðrum vörum og notkun íblöndunarefna er haldið innan strangra marka.
- Lífrænar vörur eru vottaðar af óháðum aðila sem gengur úr skugga um að framleitt sé samkvæmt alþjóðlegum reglum.
Tekið af blomaval.is |
|