|
Byggsalat |
|
|
Hráefni: 3 1/2 bolli soðið Bankabygg 4-5 gulrætur gróft rifnar 1/3 bolli rúsínur 1/3 bolli ristuð sólblómafræ 1/4-1/3 bolli ólífuolía 3 msk sítrónusafi 1 bolli ferskt dill eða 3-4 msk þurrkuð dillfræ sjávarsalt og svartur pipar Aðferð: Blandið byggi, gulrótum, rúsínum og fræum saman. Gerið sósu úr sítrónusafa, olíu og dilli og blandið vel saman í matvinnsluvél eða krukku með loki. Látið bíða í smá stund og hellið síðan yfir kornið. Saltið og piprið eftir smekk. |
|
Spírað bygg með grænmeti og heitu kryddi |
|
|
Hráefni: 1 bolli ferskir sveppir, saxaðir 3 bollar rifið grænmeti t.d. rófur, zukini, kúrbítur og gulrætur 1 bolli spírað bygg 2 tómatar fínt saxaðir 1/4 bolli söxuð steinselja
Sósa: 1-2 rif pressaður hvítlaukur 1/2 bolli sítrónusafi 2/3 bolli ólífuolía 1 tsk mísó 1 tsk létt hnetusmjör 2 tsk salt sjávar 1 tsk vel saxður jalapenopipar svartur pipar
Hristið sósuna fyrst vel saman í krukku eða matvinnsluvél, hrærið síðan öllu kröftuglega saman í skál og sveiflið á borðið. |
|
Grænt gulrótasalat |
|
Hráefni: 200 gr gulrætur 150 gr (2-3 leggir) grænkál, skorið í fína strimla og léttkreist með fingrunum 50 gr þurrristaðar pecanhnetur 4 msk þurrristuð sesamfræ, 4 msk ólífuolía 2 msk sítrónusafi smá tamari og hvítlaukur fyrir þá sem vilja Aðferð: - gulræturnar eru skornar í þunnar "eldspýtur” eða rifnar gróft á rifjárni og settar í skál ásamt grænkálinu og pecanhnetunum - sítrónusafa, olíu, sesamfræum, tamari og hvítlauk er blandað saman og hellt yfir. |
|
Rófu- og kartöflusalat |
|
Hráefni: 1/2 kg kartöflur 1/2 kg rófur 50 gr möndlur þurrristaðar á pönnu 50 gr grænar ólífur 10 sólþurrkaðir tómatar í strimlum 1 msk kapers 1/2 búnt fersk steinselja 1 1/2 dl ab-mjólk 1 msk sinnep 1 tsk karrý salt og cayennepipar eftir smekk
Aðferð: - kartöflurnar eru skornar í passlega munnbita og bakaðar í ofni við 200 °C í ca 35-40 mín, - kryddaðar með smá karrýi og salti - rófurnar eru skornar í þunna þríhyrninga” og settar út í sjóðandi vatn í ca 3 mín, þá eru þær settar í sigti og kældar - kartöflur, rófur, möndlur, ólífur, sólþurrkaðir tómatar og kapers, sett í skál - ab-mjólkinnni er hellt í skál og krydduð með sinnepi, karrýi, salti og cayennepipar - þessu er síðan hellt yfir salatið og blandað vel saman við - tilbúið. |
|
Kryddað hvítkálssalat |
|
|
Hráefni: 225 gr hvítkál, rifið frekar fínt 1 rauður chilipipar, steinhreinsaður 25 gr ferskur kóriander 25 gr þurrristaðir heslihnetukjarnar 1 msk rifið sítrónuhýði 1 tsk rifin engiferrót 1 tsk tamarinsósa, 2 msk ristuð sesamfræ, safi úr 1/2 sítrónu smá salt cayennepipar fyrir þá sem vilja. Öllu blandað saman í skál og tilbúið - bingó ! |
|
Bygg- rófu- og grænkálssúpa |
|
Hráefni: 1 búnt grænkál (3-400 gr) 1 dl Bankabygg 1 væn rófa 4 gulrætur 1 grænmetisteningur 2 l vatn eða soð jurtasalt og krydd eftir smekk. Aðferð: Fyrst er Bankabyggið soðið í u.þ.b. 35 mín, þá er smátt skornu grænmetinu bætt í pottinn, síðan kryddað og soðið í 10-15 mín í viðbót. |
|
Grænkálsjafningur |
|
|
Hráefni: 1 búnt grænkál (6 leggir) 100 gr smjör eða olía 50 gr hveiti 4 dl mjólk kryddað með salti og pipar og sykrað eftir smekk (fyrir þá sem mega við því að verða sætari).
Aðferð: Grænkálið er gufusoðið í 4 mínútur og grófustu leggirnir fjarlægðir, vatnið er látið síga vel af og kálið saxað niður eða hakkað. Smjörið er brætt og gert að þykkni með því að bæta hveitinu rólega saman við. Síðan er mjólkinni bætt við í smá skömmtum og suðan látin koma upp á milli til að forðast kekki. Þá er kryddað og soðið í 4 mín, að lokum er grænkálinu bætt útí og soðið áfram í 2 mín. Ef notað er fryst grænkál er tilvalið að láta það þiðna í jafningnum. Þessi jafningur er góður með öllum mat. |
|
Steikt grænkálssalat |
|
Hráeefni: 5-6 blöð grænkál, stöngull fjarlægður og kálið sneitt í ræmur 5 msk sesamolía 5 msk sesamfræ, ristuð á þurri pönnu þar til þau byrja að ilma og poppast.
Aðferð: Hitið olíuna á pönnu (vokpönnu sé hún við hendina), snöggsteikið grænkálið í olíunni í 2-3 mín, stráið sesamfræum yfir og berið fram heitt eða kalt sem meðlæti. Í þetta má líka bæta eftir smekk hnetum, öðru grænmeti, kryddjurtum og sósum. |
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 4 |