FLETTIMYNDIR - Vallanes

graenmeti.jpg

Uppskera

jl 249.jpg

Starfsemin

dukur.jpg

Bóndinn

fyrrverandi vinur.jpg

Byggið

byggsalat2.jpg
Eftirréttir
Bygggrautur - jólagrautur Prenta út

Hráefni:

1/2 kg Bankabygg
1 l vatn

1/2 l mjólk eða sojamjólk og eplasafi (í hlutföllun­um 3 af mjólk á móti 1 af safa)
2 kanilstangir og eða vanillustöng
möndlur
rúsínur
eplabitar
hunang eftir smekk.
 

Aðferð:
Byggið er soðið í vatni í ca 30 mín ásamt einni kanilstöng, svolítið marðri. Vatninu hellt af
og grjónin soðin í mjólk og eplasafa á lágum straumi þar til grjónin eru fullsoðin ásamt annarri kanilstöng og ef til vill rúsínum, möndlum, eplabitum eða öðru sem hugurinn girnist (farið eins að og með grjónagraut). Borið fram í fallegri skál og borðað með rjóma, hunangi, kanilsykri eða bara hverju sem er.
 
Ystingur Skoða sem PDF skjal Prenta út

1 bolli (bankabygg frá Móður jörð)

2 l nýmjólk

1 l súrmjólk

Væn handfylli af fjallagrösum

Salt og pipar eftir smekk þegar ysringurinn er bragðsettur

 

Bankabyggið er lagt í bleyti yfir nótt.

Fjallagrösin eru þvegin og hreinsuð af öllum aðskotahlutum.

Bankabyggið og fjallagrösin eru soðin í nýmjólkinni. Þegar suðan er komin vel upp er súrmjólkinni lætt niður á botn í pottinum með eysli (ausu) og látin sjóða upp í mjólkina. Ekki er hrært í pottinum meðan mjólkin sýður. Þannig verða ostarnir stórir og fínir (ystingur).

 

Fyrir daga mjólkurbúa og súrmjólkur var notuð skyrsýra/slátursýra í ysting og þá skipti miklu máli að lauma sýrunni niður á botn í pottinu undir sjóðandi nýmjólkina með fjallagrösunum og Bankabygginu til þess að sýran ysti mjólkina þegar hún sauð upp. Nú gerir súrmjólkin sama gagn og einfaldar eldamennskuna.

 

Gott er að borða ystinginn með rjómablandi út á og súru slátri eða nýrri lifrarpylsu.

 

Ískaldur ystingur með þeyttum rjóma er einstakur eftirréttur.

 

Uppskrift Þóru Sigurðardóttur á Arnarvatni í Mývatnssveit.

 
Jólagrautur Gabríels Skoða sem PDF skjal Prenta út

5 dl Bankabygg

2 l vatn 

3 epli skorin í litla  teninga

1-2 dl rúsínur

1-2  msk kanill

2  tsk. salt

1 dl döðlur (skornar smátt)

2-4 msk. hunang

1 dl muldar hnetur (tegund eftir smekk) og/eða

1 dl fræ t.d. sólblómafræ eða graskersfræ.

 

Hráefnið er allt sett í pott t.d. að kvöldi og látið sjóða í u.þ.b 7 mínútur, síðan er slökkt undir lokið sett á pottinn og farið að sofa. Daginn eftir má hita grautinn upp, þó er ekki síðra að borða hann kaldan.

Einnig má sjóða grautinn á u.þ.b. 40 mínútum (þar til hann hefur tekið upp allt vatnið).

Grauturinn þolir vel geymslu í kæli svo tilvalið er að sjóða hann til nokkurra daga í einu.

Borinn fram sem kaldur eða heitur eftirréttur með ís eða rjóma.

Þessi uppskrift er 10 góðir skammtar.

 
Byggterta með vin santo Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

125 g bankabygg
100 g ricottaostur
1 egg
1 eggjarauða
2 msk vin santo eða sérrí
1 tsk jómfrúrólífuolía
70 g sykur
30 g rúsínur
1 tsk hveiti
salt 

Sjóðið byggið í léttsöltuðu vatni í ca. 40 mín. Skolið og kælið þar til rétt volgt. Baðið rúsínurnar í víninu. Hellið bygginu í skál og blandið ricottaosti varlega saman við og þar næst eggjum, rúsínum, 50 g af sykri og sigtið hveitið saman við. Þekið kringlótt form (22 cm í þvermál) með rökum bökunarpappír og léttpenslið með olíunni. Hellið blöndunni í formið og smyrjið jafnt með sleif. Bakið við 180°c í ca. 30 mín. Dreifið restinni af sykrinumyfir kökuna og skellið undir grillið í ofninum þar til sykurinn hefur breyst í karamelluhúð (örfáar mín.) Takið úr formi og berið fram í sneiðum. Vínið með: vin santo eða gott sérrí.

LAST_UPDATED2
 
Byggkaka Dóru Á næstu grösum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
 

2 dl haframjöl, 2 dl möndlur, 0,5 dl spelt hveiti, 2 msk hlynsíróp, örlítið vatn og salt af hnífsoddi.

2 dl bankabygg, 1 dós  kókosmjólk (400 ml), 0,75 dl   hlynsýróp, salt af hnífsoddi, 2    epli,

1 dl kókosmjöl.

! dós sykurlaus hindberjasulta (250 gr.)


Aðferð
:

Haframjöli, möndlunum, spelti, salti  og hlynsírópi er blandað saman, vatninu skvett út í og hnoðað þar til allt tollir vel saman. 28 cm spingform er klætt með smjörpappír og deiginu smurt í þannig að það móti fallega skel, þ.e. að kanturinn nái upp á miðjar hliðar á forminu. Bakað við 150°c í u.þ.b. 10 mín, eða þar til fallega brúnað.

 

Sjóðið uppá bygginu í miklu vatni. Þegar suðan hefur komið upp, skiptið um vatn og skolið byggið, sjóðið þá í vatni sem rétt flýtur yfir byggið og bætið kókosmjólk, hlynsírópi og salti út í. Hrærið vel. Þegar fulleldað (byggið orðið mjúkt) takið af hita, bætið eplunum og kókosmjöli útí. Setjið allt í skelina og kælið.  Hrærið upp sultuna og smyrjið ofan á kökuna.  Saðsöm og góð kaka, og þar til nú, best varðveitta leyndarmál Dóru.

LAST_UPDATED2
 


Móðir jörð - Vallanesi - 701 Egilsstöðum
sími:471-1747 - gsm:899-5569