FLETTIMYNDIR - Vallanes

graenmeti.jpg

Uppskera

jl 249.jpg

Starfsemin

woofsbanner2.jpg

Bóndinn

eymi2.jpg

Byggið

byggsalat2.jpg
Grænkál
Skoða sem PDF skjal Prenta út
Grænkál er dökkgrænt, saðsamt og þrungið næringarefnum, lífsnauðsynlegum efnahvötum og bætiefnum, einkanlega A-, K-, og C-vítamínunum. En það fitnar enginn af því, orkuinnihaldið er aðeins 180 kílójúl í hverjum 100gr. Grænkál má borða bæði hrátt og soðið. Af því er mildur kálkeimur sem fer vel með flestum réttum. Best er að fjarlægja grófasta stilkinn fyrir suðu eða söxun. Hrátt, saxað er það fínt saman við hrásalat. Soðið er það gott í allskyns grænmetissúpur, bökur og pottrétti.  Grænkál má frysta, þá soðið í 2 mín. Síðan brytjað og fryst.  Grænkál er eitt af upprunalegustu káltegundunum og hefur verið ræktað í nær óbreyttri mynd í meira en 3000 ár.  Frá fornu fari hefur það þótt bæta meltinguna, hreinsa blóðið, bæta sjón og gera fólk glaðsinna. Það hefur verið í ræktun á Norðurlöndum frá þvi að norrænir menn settust þar að. Samt eru engar fornar heimildir um það til á Íslandi nema málshátturinn: "Eigi er sopið kálið þótt í ausuna sé komið"!

Grænkáls og bankabyggshleifur: Blandið saman léttsoðnu grænkáli og soðnu bankabyggi til helminga. Hellið slatta af rjóma eða ólífuolíu yfir. Kryddið létt með salti og þeim kryddjurtum sem við hendina eru. Hrærið í, setjið í form og bakið í meðalheitum ofni í svo sem 30-40 mínútur. Meðlæti: Rifnar rófur eða gulrætur og blaðsalat. Graslaukur að auki skemmir ekki!      
 


Móðir jörð - Vallanesi - 701 Egilsstöðum
sími:471-1747 - gsm:899-5569